Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, minnist Björgvins Halldórssonar, eins ástsælasta og afkastamesta tónlistarmanns þjóðarinnar, sem féll frá í dag. Hún deildi færslu til minningar um hann á sinni persónulegu Facebook-síðu í kvöld.„Takk fyrir alla tónlistina, gleðina og „frasana“ kæri Bo (eins og við kölluðum hann mörg) og blessuð sé minning þín. Gullvagninn kom of snemma að sækja þig en tónlistin þín lifir í hjörtum þjóðarinnar,“ skrifar Halla.„Ég sendi fjölskyldu og vinum einlægar samúðarkveðjur og hvet okkur til að minnast Björgvins með því að hlusta á Vetrarsól eða eitthvað annað gott lag sem hann flutti/átti - og minnast vináttunnar og virði tónlistarinnar í að veita huggun harmi gegn og gleði á góðum stundum. Hafðu þökk fyrir allt kæri vinur!“Halla segir Björgvin hafa sungið lagið Ve