Teymisstjóri átröskunarteymis BUGL segir aukið aðgengi að þjónustu vanta fyrir einstaklinga með átröskun. Sjúkdóminn geti verið erfitt að greina snemma.Karen Daðadóttir, teymisstjóri átröskunarteymis BUGL, segir Barna- og unglingageðdeild Landspítalans eiga í góðu samstarfi við heilsugæslu og önnur þjónustukerfi, þó skerpa megi starfsemina að einhverju leyti.Að mati Karenar vantar aukið aðgengi að þjónustu fyrir einstaklinga með átröskun á fyrri stigum veikinda, því oft séu sjúklingar orðnir mjög veikir þegar þeir leita eftir þjónustu.„Að því sögðu þá er þetta líka mjög lúmskur sjúkdómur og hann er búinn að malla kannski lengi og verður svo allt í einu alvarlegur. Ekki ólíklegt að fólk taki ekki eftir hlutunum fyrr en að það er orðið mjög alvarlegt.“ HÆTTULEGT AÐ DJÖFLAVÆÐA FÆÐUFLOKKA K