Að minnsta kosti 303 voru drepnir og 1150 særðust í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanons.Það segir að enn fleiri gætu fundist látnir í rústum húsa sem urðu fyrir loftárásum. Leitar- og björgunaraðgerðir standi enn yfir.Stjórnvöld í Ísrael samþykktu að hefja beinar samningaviðræður við stjórnvöld í Líbanon. Aðalmarkmið þeirra væru afvopnun Hezbolla-samtakanna og að koma á friðarsambandi milli ríkjanna.Björgunarsveitir leita í rústum húsa í Líbanon eftir loftárásir Ísraela síðustu daga. Björgunarsveitarmaður setur hrúgu af peningum í plastpoka sem öryggisvörður heldur á. Peningarnir fundust í húsarústum eftir loftárásir Ísraelshers.AP / Hussein Malla