Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Verkfalli farmanna aflýst í bili

Sjómannafélag Íslands hefur aflýst fyrirhuguðu verkfalli farmanna á þremur skipum Eimskipafélagsins. Verkfallið, sem tók til skipanna Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss, átti að standa yfir frá 12.-16. apríl.Boðað verkfall hafnarverkamanna dagana 13.–15. apríl stendur enn þar sem samningarnir tveir eru aðskildir.Að sögn Jónasar Garðarssonar, formanns Sjómannafélagsins, gerði Eimskipafélagið athugasemd við það að ekki hafi verið farið með verkfallið á borð ríkissáttasemjara. Framkvæmdin hafi því verið ólögleg.Jónas segir það ekki hafa verið gert þar sem Eimskipafélagið hafi ýmist sagst vera annaðhvort færeyskt eða íslenskt fyrirtæki.„Í þessu tilfelli snýst þetta um hvers lenskt Eimskipafélagið er. Allar götur frá árinu 2011 þegar við höfum staðið í kjaradeilum hafa þeir sagst vera Færeyingar e
Verkfalli farmanna aflýst í bili

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta