Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ætla að kynna tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum á morgun. Ekki er ljóst hvað felst í aðgerðunum en þeim er ætlað að taka á þeirri stöðu sem upp er komin, meðal annars vegna áhrifa af stríðsátökum í Mið-Austurlöndum.„Það er óvissa og verður áfram óvissa. En stundum þarf að taka í bremsuna og skipta um gír, detta í nýjan takt, til að hemja verðhækkanir,“ sagði Kristrún í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans í dag. Aðgerðirnar komi hins vegar ekki í staðinn fyrir umbætur til lengri tíma.„Þannig munum við leggja okkar af mörkum og hvetja atvinnulífið um leið til að leggja okkur lið með afgerandi hætti við að hemja verðbólguna og koma henni í markmið.“Kristrún ætlar líka að efna til þríhliða samtals Alþýðusambands Íslands, Samtaka atv