Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skipuðu íbúum í Beirút að flýja heimili sín

Ísraelsher skipaði íbúum í suðurhluta Beirút, höfuðborgar Líbanons, að flýja heimili sín síðdegis þar sem frekari loftárásir væru yfirvofandi. Talsmaður Ísraelshers sagði á samfélagsmiðlinum X að herinn héldi áfram hernaðaraðgerðum og loftárásum á innviði Hezbollah-samtakanna í suðurhluta landsins. Yfir 200 voru drepin í loftárásum hersins í gær og rúmlega 1000 særðust, samkvæmt yfirvöldum í Líbanon. Ísraelsher sagðist beina árásum sínum á staði samtakanna en AP sagði að nokkrar árásir í gær hefðu verið gerðar á þéttbýl íbúðarsvæði í höfuðborginni á annatíma, sem hefði leitt til mikils mannfalls hjá almennum borgurum. Ljósmynd af fjölskyldu liggur í rústum húss sem varð fyrir loftárás Ísraelshers í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag.AP / Hussein Malla
Skipuðu íbúum í Beirút að flýja heimili sín

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta