Móðir barns sem á erfitt með að mæta í skólann segir skólasóknarvanda, eða skólahöfnin, geta haft víðtæk áhrif. Hefðbundið bekkjarkerfi henti ekki öllum og því sé mikilvægt að leita lausna sem mæta þörfum nemenda.Sara Rós Kristinsdóttir er ein þeirra sem flytja erindi á málþingi Menntafléttunnar um skólaforðun sem hófst í Háskólabíói í hádeginu. Einhverfur sonur hennar glímir við skólasóknarvanda.„Erindið mitt á málþinginu í dag snýr svolítið að foreldrunum sjálfum en öllu jafna hef ég verið að tala mjög mikið fyrir hönd barnanna og ungmennanna sem eru í þessari stöðu,“ segir Sara. FORELDRAR FINNA FYRIR MIKILLI STREITU Sara segir foreldra barna sem eiga erfitt með að fóta sig í skólanum oft finna fyrir álagi og streitu. Í því samhengi sé hægt að tala um „foreldrakulnun.“ Að auki segir S