Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Á batavegi eftir alvarlegt bílslys í Mývatnssveit

Erlendir ferðamenn sem lentu í alvarlegu bílslysi í Mývatnssveit í fyrradag eru útskrifaðir af sjúkrahúsi og á batavegi. Þetta staðfestir lögreglan á Norðurlandi eystra og segir rannsókn á tildrögum slyssins langt komna.Tveir voru í bílnum, karl og kona, og var annað þeirra klippt úr bílnum með björgunarklippum eftir að bíll þeirra fór út af vegi við Mývatn og lenti harkalega.Þau voru flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á bráðamóttöku á Akureyri. Lögregla segir meiðsl þeirra hafa virst alvarleg á vettvangi, en svo reynst minni en talið var. Akstursskilyrði voru erfið í Mývatnssveitinni á þriðjudag að sögn lögreglu, krapi, snjór og bleyta var á veginum og hvasst.
Á batavegi eftir alvarlegt bílslys í Mývatnssveit

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta