Í þingsályktunartillögu, sem Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur lagt fram á Alþingi um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi til ársins 2030, er sett fram það markmið að offita verði meðhöndluð eins og aðrir langvinnir sjúkdómar, með formlegri greiningu og aðgengi að fjölbreyttum meðferðarúrræðum og endurhæfingu þar sem byggt verði á gagnreyndum aðferðum.