Mosfellsbær var rekinn með 514 milljóna króna afgangi á síðasta ári. Þetta er niðurstaða ársreiknings sem var lagður fyrir fund bæjarráðs í dag.Rekstrartekjur bæjarins námu 24,0 milljörðum og rekstrargjöld fyrir afskriftir 21,3 milljörðum. Rétt rúmlega helmingur tekna fór í launagreiðslur, 12,3 milljarðar króna. Fjárfest var fyrir 4,3 milljarða króna.Mosfellsbær.RÚV / Ragnar Visage