Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Færeyjar vilja ganga í EFTA

Ný ríkisstjórn Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins í Færeyjum vill aukna sjálfsstjórn, meðal annars með sjálfstæðri aðild landsins að EFTA og alþjóðlegum samningum, og gera eigin fríverslunarsamninga. Þetta kemur fram í stjórnarsáttmálanum sem var kynntur á blaðamannafundi í morgun.Í sáttmálanum kemur fram að ríkisstjórnin vilji auka sjálfsákvörðunarrétt í sínum málum. Meðal annars á að fara í viðræður við dönsk stjórnvöld um að Færeyingar verði sjálfstæðir aðilar að alþjóðasamstarfi. Kanna á möguleikann á aðild að EFTA og á fríverslunarsamningum við Evrópusambandið og önnur lönd. Í framhaldinu eigi Færeyingar að vera hluti af NATO og allar aðgerðir í öryggis- og varnarmálum sem tengjast Færeyjum verði samþykktar af yfirvöldum þar. Túlka má þetta sem skýr skilaboð til da
Færeyjar vilja ganga í EFTA

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta