Útvarpsmaðurinn Kristófer Helgason greindist með Parkinsonsveiki fyrir tveimur árum og notar meðal annars hreyfingu til þess að halda henni niðri. Kristófer er þekktastur fyrir þættina Reykjavík síðdegis á Bylgjunni og er einn af vinsælustu líkamsræktarþjálfurum landsins. Hann stendur til að mynda fyrir vinsælum ketilbjöllunámskeiðum í World Class í Laugum og þar komast færri að en vilja.