Björgvin Halldórsson, einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, er látinn, 74 ára að aldri.Björgvin, sem oft var kallaður Bó Halldórs, fæddist í Hafnarfirði 16. apríl 1951. Hann hóf ungur tónlistarferil sinn og varð fljótt einn vinsælasti og afkastamesti söngvari landsins.Hann var valinn poppstjarna ársins 1969, þá aðeins átján ára gamall. Árið 2011 var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu.Meðal hljómsveita sem nutu krafta Björgvins í gegnum tíðina voru Brimkló, Hljómar, Change, Ðe lónlí blú bojs og HLH flokkurinn.Björgvin hélt tónleikana Jólagestir Björgvins sem haldnir voru í síðasta skipti 2024.