Snjóflóðavarnargarður ofan Patreksfjarðar kom í veg fyrir að snjóflóð félli á hús neðan garðsins. Snjóflóðið féll 26. mars og er það stærsta sem fallið hefur á þessum slóðum allt frá árinu 1958 eða í 68 ár.Frá þessu er greint í yfirliti á vef Veðurstofunnar um snjóflóð á Vestfjörðum og Mið-Norðurlandi í mars. Miklar snjóflóðahrinur voru 15.–19. og 23.–27. mars.Nokkuð stórt snjóflóð féll úr hlíðinni ofan Urðargötu á Patreksfirði 26. mars og lenti af krafti á þvergarði ofan byggðarinnar. Þarna féll snjóflóð 1948 sem olli töluverðu tjóni. Varnargarðurinn virðist hafa komið í veg fyrir að flóðið í síðasta mánuði félli á hús neðan garðsins.„Nýir varnargarðar verja nú bæði þessi hverfi, Mýrar og Urðir, en svæðið á milli þeirra er þekktur snjóflóðafarvegur og með virkustu farvegum ofan byggðar á