Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrjá menn til fimm ára fangelsisvistar í síðasta mánuði. Þeir reyndu að smygla níu lítrum af kókaínbasa til landsins. Efnið földu þeir í tveimur rauðvínskössum sem voru í Peugeot-bíl sem einn þeirra ferðaðist með í Norrænu.Upp komst um smyglið þegar Norræna kom í land á Seyðisfirði í nóvember. Lögregla skipti fíkniefnunum út fyrir gerviefni. Hún fylgdist með ferðum bílstjórans, Ali Aoudia, og sá hann afhenda Higor De Souza Bernardo efnin skammt frá hóteli við Brautarholt í Reykjavík þremur dögum eftir komuna til Íslands. Skömmu síðar kom Marco Antonio Raizer Marafon og sótti De Souza Bernardo. Þeir voru handteknir skömmu síðar með gerviefnin.Mennirnir kröfðust allir sýknu en til vara vægustu refsingar.Einn þeirra kom á bíl sem hafði ekki verið með skráðan eiga