Landspítalinn ætlar að fækka starfsfólki sem er í lágu starfshlutfalli til að mæta aðhaldskröfu stjórnvalda. Markmiðið er að fjölga fólki í hærra starfshlutfalli til að tryggja þjónustu við sjúklinga án þess að auka kostnað. Þetta segir Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðalyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans.Ragnar Freyr Ingvarsson læknir birti færslu á Facebook í gær þar sem hann furðaði sig á að sér hefði verið sagt upp störfum. Hann hefur starfað sem sérfræðingur í almennum lyflækningum á Landspítalanum í Fossvogi. Undanfarið hefur hann verið í 33% starfshlutfalli.„Skýringin á þessu máli öllu er þessi skýra og ákveðna aðhaldskrafa stjórnvalda á Landspítalann,“ segir Rafn.„Staðreyndin er auðvitað sú að við þurfum að reyna að nýta eins vel og hægt er þau stöðugildi sem