Rio Tinto tapaði fyrir páska dómsmáli sínu gegn íslenska ríkinu þar sem tekist var á um skattgreiðslur fyrirtækisins vegna áranna 2014 til 2016. Skatturinn lagði viðbótarskatt á fyrirtækið 2019 þar sem hann taldi ekki sýnt fram á að greiðslur til móðurfélags þess upp á rúma 2,3 milljarða ættu í raun að dragast frá skatti hér á landi. Þá ákvörðun staðfesti yfirskattanefnd ári síðar.Sama gerði skatturinn síðar með greiðslur upp á rúma 2,5 milljarða króna vegna áranna 2017 og 2018.Samtals námu greiðslurnar sem Rio Tinto ætti að vera frádráttarbærar frá skatti, en Skatturinn ekki, tæplega 4,9 milljörðum króna.Greiðslurnar námu 2,2 prósentum af brúttótekjum af sölu á áli til móðurfélagsins vegna aðkeyptrar tækniþjónustu.Fyrirtækið og Skattinn greindi á um hvernig greiðslurnar hefðu verið metnar