Emmanuel Macron forseti Frakklands hvetur Bandaríkin og Írana til að láta vopnahléið ná yfir Líbanon líka. Hann áréttaði þessa skoðun sína við Donald Trump Bandaríkjaforseta og forseta Írans Masoud Pezeshkian í gær.Að minnsta kosti 182 voru drepnir og 890 særðust í miklum árásum ísraelska hersins á Líbanon í dag. Ísraelsk stjórnvöld hafa ekki virt vopnahléið og segja vopnahléið ekki ná yfir Líbanon.Í færslu á samfélagsmiðlinum X sagði Macron að hann vonaðist til þess að vopnahléið yrði virt af öllum þjóðunum sem hlut eiga að máli og það væri forsenda þess að vopnahléið yrði trúverðugt og varanlegt. Macron er fyrsti vestræni þjóðarleiðtoginn sem ræddi við íranska forsetann síðan tilkynnt var um vopnahléið.Frakklandsforseti sagði mikilvægt að vopnahléið skapi grunn fyrir samninga sem tryggi