Flætt hefur yfir vegi í Útblönduhlíð í austanverðum Skagafirði og við Svínavatn. Vegir eru margir mjög varasamir og illa farnir eftir veturinn.Töluverð hlýindi og leysingar hafa verið á landinu í dag og gær. Vatn hefur flætt yfir vegi á Norðurlandi og holur myndast í slitlagi. Grafið hefur úr vegköntum og sums staðar hefur þurft að loka vegum.Vegagerðin vinnur að því að veita vatni í rétta farvegi og fylla upp í þar sem grafist hefur úr vegbrúnum. Hún hefur verið að störfum á Öxnadalsheiði, í Útblönduhlíð og Bólstaðarhlíð við Vatnsskarð. Vegir eru einnig holóttir og illa farnir sums staðar eftir leysingar. Hefur Vegagerðin vakið athygli á því að flætt getur yfir vegi mjög skyndilega og fólk beðið að sýna aðgát á þeim svæðum sem varað er við því.Á Austurlandi hafa fjölmörg lítil ofanflóð, s