Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Allir þurfa í rauninni að fá að sjá svona einu sinni finnst mér“

„Markmiðið er náttúrulega bara að hafa áhrif á ungt fólk og fá það til þess að hugsa aðeins. Við erum að tala við fyrsta bekkinn í Verzló og við erum að reyna að ná á þau þegar þau eru að fara að taka bílprófið, svo þau fari aðeins að pæla áður en þau fara út á veginn,“ segir Bjarklind Björk Gunnarsdóttir, sérfræðingur öryggis- og fræðsludeildar hjá Samgöngustofu.Þetta er í fyrsta sinn sem forvarnardagurinn er haldinn á höfuðborgarsvæðinu.Hátt í 400 nemendur hlýddu á fyrirlestur um umferðaröryggi, þar sem megináhersla var lögð á hættuna sem fylgir því að nota síma undir stýri, akstur undir áhrifum, hraðakstur og bílbeltanotkun, sem hefur dregist saman meðal ungs fólks.Þá sýndu viðbragðsaðilar hvernig þeir athafna sig þegar þeir koma að bílslysi sem var sviðsett fyrir utan skólann.
„Allir þurfa í rauninni að fá að sjá svona einu sinni finnst mér“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta