Jasveen Sangha, betur þekkt sem „Ketamín-drottningin“, hefur hlotið 15 ára fangelsisdóm fyrir að selja Friends-leikaranum Matthew Perry eiturlyf sem leiddu til andláts hans. Sangha neitaði upphaflega sök en játaði síðar fimm af níu ákæruliðum, þar á meðal að hafa selt Perry ketamín sem leiddi til dauða hans.Fimm voru ákærð í tengslum við dauða Perry Sangha, tveir læknar sem útveguðu honum lyf, aðstoðarmaður hans og kunningi hans. Læknarnir tveir, þeir Salvador Plasencia og Mark Chavez, hafa játað sig seka.Perry fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í Los Angeles í október 2023. Krufning leiddi í ljós að Perry hafði látist af völdum ketamínneyslu, drukknunar og kransæðastíflu. Honum hafði verið ávísað ketamíni en hafði glímt við fíknisjúkdóma árum saman.