Ása Ellerup, íslensk fyrrverandi eiginkona raðmorðingjans Rex Heuerman, ávarpaði fjölmiðla fyrir utan dómstóla í dag eftir að hann játaði að hafa myrt átta konur á árunum 1993-2010. Ása sagði hug sinn hjá fórnarlömbum fyrrverandi eiginmannsins og fjölskyldum þeirra.„Á þessari stundu bið ég ykkur að veita fjölskyldu minni smá næði á þessum erfiða tíma,“ sagði hún.Þegar blaðamaður spurði hvernig hún hafi ekki vitað um morð þáverandi eiginmannsins svaraði hún ekki. Lögmaður hennar benti á að morðin hefðu átt sér stað á meðan hún var fjarri fjölskylduheimilinu, en áður hefur komið fram að Ása hafi yfirleitt verið á Íslandi þegar Heuerman framdi morðin. Hún hefur áður sagst fullviss um sakleysi hans.