Bandaríkjamaðurinn Rex Heuermann gekkst í dag við því að hafa myrt átta konur á árunum 1993 til 2010. Heuermann, sem var giftur íslenskri konu og starfaði sem arkitekt um árabil, hafði áður neitað sök í málinu.Heuermann viðurkenndi fyrir dómi að hafa kyrkt konurnar. Hann hafði verið ákærður fyrir að hafa myrt sjö konur en játaði einnig áttunda morðið fyrir dómi sem ekki var hluti af ákærunni og hafði lengi verið óupplýst.Ættingjar fórnarlamba Heuermann voru viðstaddir játninguna í dómsal í New York ásamt fjölmiðlamönnum og grétu fjölskyldurnar þegar játningin var lesin upp.Samkvæmt upplýsingum frá saksóknurum vestanhafs á Heuermann að hafa samið um lífstíðardóm án möguleika á reynslulausn með því að játa verknaðinn.Að sögn bandarískra lögregluyfirvalda voru morðin þaulskipulögð með kerfisb