Geimfararnir í Armetis-leiðangrinum sem eru á leið aftur til jarðar eftir að hafa ferðast lengra út í geim en nokkur maður hefur áður gert, undirbjuggu sig meðal annars fyrir leiðangurinn á Íslandi.Artemis-farið fór kringum tunglið í gær og í upptöku heyrist þegar sérfræðingar NASA ræða við geimfarana Victor Glover og Christinu Koch og sýnt var frá í beinu streymi.Glover lýsir hvernig áferðin lítur út, hún sé eins og nýstorknað hraun. Koch er hrifin af lýsingum hans.„Þetta er dásamleg lýsing, hvernig það breytist úr sléttu yfir í hraun. Það minnir okkur á hálendið á Íslandi.“Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá og heyra talið um Ísland, og brot af undirbúningi fyrir geimferðir hér á landi.