Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Beinir nýr lögmaður Færeyja

Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, verður nýr lögmaður Færeyja. Færeyska ríkissjónvarpið, Kringvarpið, segir að Fólkaflokkurinn sé einnig búinn að mynda stjórn með Sambandsflokknum og Jafnaðarflokknum. Ríkisstjórnarsamstarfið verður tilkynnt formlega á blaðamannafundi á morgun.Kosið var til Lögþingsins 26. mars og Fólkaflokkurinn var sigurvegari þeirra. Flokkurinn bætti við sig þremur þingsætum frá síðustu kosningum og fékk alls níu þingsæti. 33 þingsæti eru á Lögþingi Færeyja og 17 þingsæti þarf til að mynda ríkisstjórn.Beinir fæddist í Klaksvik 12. febrúar 1997 og er því 29 ára. Hann var fyrst kjörinn á þing fyrir flokkinn 2019 og varð formaður eftir kosningar 2022. Hann á ekki langt að sækja stjórnmálaáhugann því Vilhelm Johannesen afi hans var virkur í stjórnmálum og fráfarand
Beinir nýr lögmaður Færeyja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta