Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fær ekki að vita netfangið hjá heimilislækninum sínum

Íbúi á höfuðborgarsvæðinu sem vildi geta haft samskipti við heimilislækninn sinn í gegnum tölvupóst leitaði til úrskurðarnefndar um upplýsingamál þegar heilsugæslan neitaði að gefa upp netfang læknisins.Einstaklingurinn hafði samband við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í haust og bað um netfang heimilislæknis síns. Hann hugðist senda erindi á lækninn en taldi vefinn Heilsuveru ekki henta til þess. Bæði væri takmarkað hversu langan texta væri hægt að skrifa á Heilsuveru og að auki taldi viðkomandi að erindi sitt ætti ekki erindi við aðra starfsmenn heilsugæslunnar en lækninn sinn, hvorki móttökuritara né annað starfsfólk.Heilsugæslan neitaði að upplýsa um netfangið. Það sætti hann sig ekki við og kærði ákvörðunina til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Kærandinn taldi sig eiga rétt á að ge
Fær ekki að vita netfangið hjá heimilislækninum sínum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta