Forsvarsmaður netáfengissöluverslunarinnar Smáríkisins, Vilhjálmur Forberg Ólafsson, hefur verið dæmdur fyrir sölu á hvítvínsbelju í Héraðsdómi Reykjaness.Vísir greindi fyrst frá en Vilhjálmur hlýtur 100 þúsund króna sekt fyrir brotið. Greiði hann ekki innan fjögurra vikna þarf hann að sæta fangelsisvist í átta daga. Þá þarf Vilhjálmur einnig að greiða málsvarnarlaun verjanda síns sem nema 4,9 milljónum króna.Í svari við fyrirspurn fréttastofu segist Ólafur Eiríksson, verjandi Vilhjálms, ekki ætla að veita viðtal um málið að svo stöddu en að skjólstæðingur hans hyggist áfrýja málinu til Landsréttar. ERLENDA VEFSÍÐAN AÐEINS NOTUÐ TIL MILLIGÖNGU Dómurinn var kveðinn upp í dag en hefur ekki verið birtur á vef dómstólsins enn sem komið er og liggja forsendur hans því ekki fyrir enn sem komi