Rex Heuermann hefur játað að hafa myrt sjö konur sem tengjast áralangri rannsókn lögreglu á Gilgo-raðmorðingjanum. Auk þess viðurkenndi hann að hafa myrt aðra konu sem hann hafði ekki verið ákærður fyrir. Konurnar hurfu á milli 1993 og 2010. Rannsókn málsins spannar mörg ár en Heuermann var ekki grunaður fyrr en árið 2022.