JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, lýsti í gær yfir stuðningi við Viktor Orban, þjóðernissinnaðan forsætisráðherra Ungverjalands, fyrir þingkosningarnar um helgina þar sem hart er barist, og sakaði Evrópusambandið um „erlend afskipti af kosningum“, þrátt fyrir að hann sé sjálfur sýnilega fulltrúi erlends valds í kosningabaráttunni. Orban, sem er sá leiðtogi ESB sem hefur nánust tengsl við bæði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna,...