Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Oddviti og sveitarstjóri leiða Framfaralistann í Flóahreppi

Árni Eiríksson, teymisstjóri og oddviti sveitarstjórnar, leiðir Framfaralistann í Flóahreppi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu í annað sinn en hann hlaut þrjá kjörna fulltrúa í síðustu kosningum.Í öðru sæti listans er Hulda Kristjánsdóttir, sveitarstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi. Það þriðja skipar Walter Fannar Kristjánsson, laganemi og sveitarstjórnarfulltrúi.Í tilkynningu flokksins kemur fram að framkvæmdir innviða hafi verið í brennidepli á liðnu kjörtímabili. Þá hyggjast fulltrúar listans, sem skipað hafa meirihluta sveitarstjórnar undanfarin fjögur ár, byggja á þeim grunni sem fyrir sé hljóti hann áframhaldandi stuðning íbúa.
Oddviti og sveitarstjóri leiða Framfaralistann í Flóahreppi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta