Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

NRK neitar að ný sería af SKAM sé á leiðinni

Uppþot varð í netheimum í dag þegar dagsetningin 17. apríl 2026 birtist á Facebook-síðu norsku sjónvarpsþáttanna SKAM. Þættirnir nutu mikilla vinsælda en þeir fjölluðu um hóp unglinga í framhaldsskóla í Osló í Noregi, hversdagslíf þeirra, sorgir og sigra.Mynd með dagsetningunni 17.04.26 birtist á Facebook-síðu þáttarins í dag og vakti von hjá aðdáendum um að framhaldsþættir væru mögulega á leiðinni. Norska ríkissjónvarpið, NRK, sem framleiddi og sýndi þættina, neitar því að framhald sé á leiðinni.„NRK stjórnar ekki þessari Facebook-síðu. Það er ekki satt að það verði framhald á þáttunum,“ segir Marianne Furevold, ritstjóri sjónvarpsþátta.Fjórar þáttaraðir voru gerðar og snerist hver og ein um eina persónu í vinahópnum. Fyrsti þátturinn var frumsýndur 25. september 2015 og lokaþátturinn var
NRK neitar að ný sería af SKAM sé á leiðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta