Viðgerðir í Hvalfjarðargöngum fara vel af stað, segir Valgarður Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni.Framkvæmdir í göngunum hófust í gær en vegna viðgerðanna verða göngin lokuð frá hálf tíu á kvöldin til sex á morgnana næstu sjö vikurnar.„Þetta gekk samkvæmt áætlun, bara mjög vel,“ segir Valgarður. Hann segir lokanirnar í gærkvöld og í nótt ekki virðast hafa verið til mikilla vandkvæða.„Sem betur fer var ekki mikið vesen, en fólk er aðeins að átta sig á þessu,“ segir Valgarður. Hann bætir við að talsvert hafi borið á ferðamönnum sem ekki hafi vitað af lokuninni en ítrekar að heilt yfir hafi lokunin gengið vel fyrir sig.Töluverð umferð myndaðist við göngin skömmu fyrir lokun í gær og segir Valgarður það viðbúið. Slíkt sé algengt þegar komi að framkvæmdum sem þessum.„Við hvetjum fólk t