Sykurskattur er aftur kominn í umræðu á Íslandi eftir að Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi landlæknir, lagði fram þingsályktunartillögu með það að markmiði að Ísland yrði ekki lengur með mestu offitu meðal barna af öllum Norðurlöndunum. Í þingsályktunartillögunni er fyrsti liður aðgerða að innleiða hagræna hvata í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) til þess að sporna gegn vaxandi tíðni...