Forsvarsmenn þriggja helstu stéttarfélaga starfsmanna Icelandair bíða öll eftir frekari upplýsingum frá flugfélaginu um fyrirhuguð viðskipti þess á Möltu. Meira en 3000 starfsmenn vinna hjá Icelandair og er fyrirtækið einn stærsti vinnustaður landsins. > Við verðum áfram íslenskt flugfélag og að langmestu leyti með íslenska starfsmenn eins og við erum með í dag. Tilkynning Icelandair um möguleg kaup á 49 prósenta hlut í maltversku félagi Play fyrir páska hefur vakið upp áhyggjur og kallað fram spurningar hjá mörgum í starfsliði Icelandair. Helsta eign þessa félags, sem heitir Fly Play Europe, er maltverskt flugrekstrarleyfi. Til stendur að flytja hluta af starfsemi Icelandair til Möltu ef af viðskiptunum verður þó að Bogi Nils Bogason forstjóri segi að meginhluti starfseminnar verði áfr