Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, telur að íslensk stjórnvöld brjóti gegn EES-reglum með því að krefjast þess að vissar dýraafurðir hafi verið frystar í minnst 30 daga áður en þær koma til Íslands. Þetta á við um afurðir sem hafa verið fluttar inn á EES-svæðið frá löndum utan EFTA og Evrópusambandsins.ESA segir að með því að gera slíka kröfu um frystingu og með því að krefjast viðbótarleyfis fyrir innflutningnum gangi Ísland lengra en það megi samkvæmt EES-reglum. ESA hefur sent Íslandi formlegt áminningarbréf sem stjórnvöld þurfa að svara innan tveggja mánaða. Í framhaldi af því ákveður ESA hvort stofnunin haldi áfram með málið eða ekki.Deilan snýst um innflutning á dýraafurðum til Íslands sem hafa verið fluttar inn á EES-svæðið í samræmi við þær reglur sem þar gilda. ESA komst á snoðir um aukn