Ráðamenn víða um heim hafa fagnað vopnahléssamkomulaginu sem náðist í gær milli Bandaríkjanna og Írans. Þeir leggja áherslu á að leysa verði úr deilunum með friðsamlegum hætti og ná varanlegu samkomulagi um frið. Nokkrir hafa gagnrýnt Ísraela fyrir að halda áfram árásum í Líbanon.Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði að með vopnahléssamkomulaginu skapaðist tækifæri til að draga úr hótunum, stöðva eldflaugaárásir, hefja siglingar á ný og gefa færi á viðræðum um varanlegt friðarsamkomulag. Hún hét stuðningi ESB við friðarferlið.Badr Abdelatty, utanríkisráðherra Egyptalands, lýsti ánægju sinni með vopnahléssamkomulagið og sérstaklega því að Bandaríkjastjórn hefði ákveðið að gefa færi á því að semja um frið.Mao Ning, talskona kínverska utanríkisráðuneytisins, sagði þarlend