Ferðakostnaður Reykjavíkurborgar kostaði útsvarsgreiðendur um 65 milljónir króna á síðasta ári, eða árið 2025, þar af voru 45 milljónir tæpar vegna ferðalaga erlendis. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar er atkvæðamest þegar kemur að ferðalögum Reykjavíkurborgar. Gjaldfærður kostnaður árið 2025 vegna ferða kjörinna fulltrúa var um fjórar milljónir króna og skrifstofa Reykjavíkurborgar er með næsthæsta kostnaðinn þegar kemur að ferðalögum innan borgarinnar....