Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Bandaríkin hafi unnið algeran og fullkominn sigur, eftir að tilkynnt var um vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans í gærkvöld. Þetta sagði hann í stuttu viðtali við fréttaveituna AFP eftir að Bandaríkin tilkynntu að samkomulag hefði náðst um tveggja vikna vopnahlé og opnun Hormússunds seint í gærkvöld. Íranar sendu Bandaríkjastjórn friðartillögu í 10 liðum um hvernig megi binda enda á stríðið með milligöngu stjórnvalda í Pakistan.Íranar hafa einnig lýst yfir sigri og stjórnvöld hafa samþykkt að hefja viðræður á föstudaginn. „Óvinurinn hefur beðið ótvíræðan, sögulegan og algjöran ósigur í þessu huglausa, ólöglega og glæpsamlega stríði gegn írönsku þjóðinni,“ sagði í yfirlýsingu frá þjóðaröryggisráði Írans.Íranar segja að íranski herinn tryggi örugga si