Milljarðamæringurinn Bill Gates mun bera vitni fyrir eftirlitsnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar Jeffrey Epstein 10. júní næstkomandi. Hann kemur fyrir nefndina til að greina frá kynnum sínum af kynferðisbrotamanninum og barnaníðingnum Jeffrey Epstein og samverkakonu hans Ghislaine Maxwell samkvæmt heimildarmanni AFP fréttaveitunnar.Vitnisburðurinn er talinn fara fram fyrir luktum dyrum en verði afritaður og gerður opinber. Það er sams konar fyrirkomulag og þegar Bill Clinton fyrrum Bandaríkjaforseti og Hillary Clinton fyrrum utanríkisráðherra báru vitni fyrir nefndinni.Gates er sagður fagna því að fá tækifæri til að bera vitni fyrir nefndinni, samkvæmt talsmanni hans. Gates hefur áður sagt að hann hafi gert stór mistök með því að umgangast Epstein.Nafn Gates kemur margoft