Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið á morgun

Samtök hernaðarandstæðinga hafa boðað til mótmæla við bandaríska sendiráðið á morgun, miðvikudaginn 8. apríl, klukkan 17:00. Í tilkynningu samtakanna segir að ræðumenn verði tilkynntir síðar. „Eftir linnulausar árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran síðustu vikur hefur Donald Trump forseti Bandaríkjanna nú hótað að tortíma írönsku þjóðinni í heild sinni. Heimurinn hefur ekki verið á hættulegri stað áratugum saman.“Í tilkynningunni segir að stríðið viðkomi öllu samfélaginu, því sé verið að mótmæla „aðgerðum og hugleysi íslenskra stjórnvalda og vestrænna þjóða gagnvart Bandaríkjunum og Ísrael.“
Boða til mótmæla við bandaríska sendiráðið á morgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta