Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðingur í öryggis- og utanríkismálum, segist viss um að Donald Trump Bandaríkjaforseti muni ekki standa við hótanir sínar frá því fyrr í dag.Hótanirnar sneru að því að siðmenning Íran liði undir lok nema stjórnvöld þar í landi gæfu eftir kröfum Trump, semdu um frið og opnuðu Hormússund aftur fyrir olíuflutningum.„Ég vil gefa mér það að Trump framkvæmi ekki þessi lýsingarorð í dag, ég er alveg viss um það reyndar,“ segir Albert Jónsson.Trump hefur gefið Írönum frest til miðnættis að íslenskum tíma til að opna Hormússund ella muni hann láta eldi og brennisteini rigna yfir landið. Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur í málefnum Írans, segir óljóst hvað verði af hótunum Trump.„Við þurfum kannski að leyfa nóttinni að líða og sjá hvað gerist í nótt og