Bandaríkjaforseti reynir að neyða Írana að samningaborðinu með hótunum á samfélagsmiðlum, að mati prófessors í sagnfræði. Hótanir Trumps í dag hafa vakið heimsathygli. VERÐUM AÐ TAKA ÞESSI ORÐ ALVARLEGA Donald Trump Bandaríkjaforseti hóf færslu sína á Truth Social í dag svona: „Heil siðmenning deyr í kvöld og snýr aldrei aftur.“ Hann sagðist ekki vilja að það gerðist en líklega yrði af því.Átök Bandaríkjanna og Ísraels við Íran hófust í lok febrúar og þrátt fyrir friðarumleitanir er ekki útlit fyrir að þeim linni á næstunni. Trump hefur gefið Írönum frest þar til í kvöld til að semja og opna Hormússund.„Á vissan hátt er hann í sjálfu sér að reyna að neyða Írana til þess að semja við sig og Íranar hafa ekki sýnt neinn sérstakan áhuga á að semja við Trump því þeir skynja það að Trump er k