Um tuttugu Íslendingar sem áttu flug með Icelandair frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur í gær sitja fastir í Þórshöfn í Færeyjum þangað til á morgun. Farþegi segist hafa fengið litlar sem engar upplýsingar frá Icelandair en upplýsingafulltrúi flugfélagsins segir að unnið sé að úrlausn.Guðrún Guðjónsdóttir er ein þeirra sem ætluðu að fljúga heim til Íslands frá Kaupmannahöfn í gær. Hún segist hafa fengið tölvupóst frá Icelandair í fyrradag þar sem farþegar voru upplýstir um að fluginu hefði verið aflýst vegna veðurs og að þeim hefði verið útveguð gisting á hóteli í Þórshöfn í eina nótt. „ENGINN VISSI EITT NÉ NEITT“ „Upphaflega var það þannig að þeir ætluðu að millilenda hérna í Færeyjum og svo ætluðu þeir að sækja okkur og fljúga með okkur frá Þórshöfn til Reykjavíkur. En svo er því flugi a