Félagsmenn Sjómannafélags Íslands hafa boðað til vinnustöðvunar í næstu viku sem nær til hafnarverkamanna og farmanna sem starfa fyrir Eimskip. Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar félagsins, segir að Eimskip hafi ekki viljað semja við félagið um kjör hafnarverkamanna og bent á Eflingu.