Donald Trump Bandaríkjaforseti segir heila siðmenningu verða þurrkaða út í kvöld, semji Íranar ekki við Bandaríkjamenn og opni Hormússund. Utanríkisráðherra Íslands segir það brot á alþjóðalögum og kveðst ekki muna stöðuna verri í alþjóðamálum.Átök Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hafa staðið síðan í lok febrúar. og ekki er útlit fyrir að þeim linni á næstunni þrátt fyrir friðarumleitanir. Klerkastjórnin í Íran hefur til miðnættis, að íslenskum tíma, samkvæmt yfirlýsingu Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins.J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna sagði fyrr í dag að Bandaríkjaher ætti verkfæri sem hann hefði ekki beitt hingað til. Hvíta húsið hafnaði því að Vance ætti við kjarnorkuvopn. Aðspurð hvort Trump væri reiðubúinn að nota kjarnorkuvopn sagði Leavitt blaðamönnum að aðein