Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Flæðir yfir vegi í Skagafirði - Varað við leysingum næstu daga

Vatn flæðir yfir Siglufjarðarveg í Útblönduhlíð í austanverðum Skagafirði og hefur veginum verið lokað. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru þar að störfum að reyna að losa snjó og klaka úr skurðum við veginn.Verkstjóri hjá Vegagerðinni segir að vatnsmagnið sé slíkt að öruggast hafi verið að loka veginum. Vatnavextir eru þó algengir á þessum slóðum þegar hlánar.Vatn flæðir yfir vegi á Norðurlandi og Vegagerðin hefur lokað vegi um Sauðárkróksbraut að Norðurlandsvegi. Vegfarendur eru beðnir að fara með gát víðar um Norðurlandið, þar sem snjór bráðnar hratt.Hiti hefur verið í kringum sjö gráður á Norðurlandi í dag og víða hefur safnast mikill snjór undanfarnar vikur. Í dag hefur því tekið að hlána heldur hratt og varar Vegagerðin við því að vatn flæði yfir vegi á nokkrum stöðum á Norðurlandi. LEY
Flæðir yfir vegi í Skagafirði - Varað við leysingum næstu daga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta