Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segist vona að orð Donalds Trump Bandaríkjaforseta um hernaðaraðgerðir á gríðarlegum skala séu innantómar hótanir. Málflutningur Trump er að hans mati óboðlegur. Þetta skrifar þingmaðurinn á Facebook-síðu sína.Bandaríkjaforseti skrifaði fyrr í dag á Truth Social að heil siðmenning yrði þurrkuð út í kvöld ef Íranir semji ekki við Bandaríkjamenn.Átök Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran hafa staðið síðan í lok febrúar og ekki er útlit fyrir að þeim linni á næstunni þrátt fyrir friðarumleitanir. Trump hefur gefið Írönum frest þar til í kvöld til að semja og opna Hormússund.„Allra helst vonar maður að þetta séu innantómar hótanir Bandaríkjaforseta sem er kominn í krappa stöðu og að í staðinn setjist menn við samningaborðið, en það afsakar aldrei þennan óboð