Lögregla í Svíþjóð hefur óskað eftir upplýsingum frá almenningi vegna rannsóknar á atviki sem varð á bílastæði í borginni Borås í gær, á annan í páskum. Grunur leikur á að um mannrán hafi verið ræða. Málið er rannsakað sem mannrán en lögreglu hefur ekki tekist að komast að því hvaða manneskju hefur þá verið rænt. Lesa meira