Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sá grjóthrun, snjóflóð og hreindýrahjörð á leið í vinnuna

Benedikt Jónsson, starfsmaður í álverinu á Reyðarfirði og íbúi á Breiðdalsvík, fór með rútu í vinnuna í morgun. Á leiðinni ók rútan fram á snjóflóð og grjóthrun í Kambanesskriðum og hreindýrahjörð sem hljóp yfir veginn í Fáskrúsfirði.„Manni stendur eiginlega ekki á sama þegar maður er að keyra þarna.“Börnum í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla er ekið um skriðurnar daglega. Guðný Harðardóttir, bóndi í Breiðdal og formaður foreldrafélagsins við skólann, segir foreldra löngum hafa haft áhyggjur af börnunum á þessu ferðalagi og reynt að vekja athygli Vegagerðarinnar á því hversu varasamar aðstæður geti skapast þar.„Það þarf ekki nema einn svona grjóthnullung eða snjóflóð á röngum tíma þá eru börnin í stórhættu,“ segir Guðný.
Sá grjóthrun, snjóflóð og hreindýrahjörð á leið í vinnuna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta