Varaformaður Miðflokksins, Snorri Másson, segir „vonir hafa brugðist“ varðandi Donald Trump Bandaríkjaforseta, eftir að forsetinn hótaði í dag að „eyða siðmenningu“ Írans. Áður hafa samflokksmenn Snorra vakið máls á því að íslensk stjórnvöld eða Alþingi veiti Donald Trump verðlaun. „Heil siðmenning mun deyja í kvöld og verður aldrei endurvakin,“ sagði Trump á samfélagsmiðli sínum í dag, en útilokaði ekki að „eitthvað dásamlegt“ myndi gerast sem...